Allt sem þú lest er lygi!
25.11.2004 22:20:02 / Halla

ok

vá .. ég nenni ekki að eyða öllu!

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.11.2004 22:15:18 / Halla

úff

ég gefst upp á þessu :S


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.08.2004 15:25:00 / Halla

PanAAAma!

Jább.. ég er eiginlega búin að ákveða mig! Ég ætla til Panama sem skiptinemi! Þvílík og önnur eins fegurð! Reyndar er ég bara búin að sjá svona túristamyndir! En samt!!! Ohh.. það er svooo erfitt að velja á milli allra landanna sem hægt er að fara til. Ég ætlaði til Frakklands .. eeen .. hmm .. ýmsar ástæður .. eða aðallega ein ástæða .. verður til þess að það er eiginlega útúr myndinni. En já, menningarnótt í gær, það var alveg ágætt bara. Hitti alveg nóg af fólki svosem. Skemmtilegasti hluturinn var reyndar að hitta Álfrúnu vinkonu mína frá Bretlandi sem ég hef ekki hitt í fleiri fleiri ár. Það var æðislegt, var bara frekar mikið með henni allt kvöldið þjar sem aðrar vinkonur .. voru .. skulum segja .. hressar? Verst samt við kvöldið var það að ég hitti ekki Sillu og Kittu. Ég er ekki búin að hitta þær í marga daga eða eitthvað! Það er ekki nógu gott! En ég sá Maus-fjelagann minn. That made my day! Hehehe, og já.. uppgötvaði Úlpu. Gott mál! Og Ensími!´ Ég er döll!

» 104 hafa sagt sína skoðun

21.08.2004 11:51:16 / Halla

Í móral með Coral!

Einu sinni heyrði ég svo alveg geðveikt skemmtilega sögu sem innihélt titilssetninguna, bol, Sveppa og Hróaskeldu. Mér dettur hún nefninlega í hug alveg svona 100 sinnum á dag því að ég hlusta ekki á annað en Coral núna!!! Þessi hljómsveit er bara svo ótrúleg. Ég skil ekki að þeir séu ekki "búniraðmeikaþað" þeir eru fullkomnlega það góðir. Ég bara get ekki tekið diskinn (sem ég fékk geeefins á Gauknum , hehe) af repeat! En það er bara hamingja í gangi held ég .. menningarnótt á eftir og aldrei þessu vant er geðveikt veður! :D vonandi helst það bara! Bleee

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.08.2004 23:02:07 / Halla

Ég vildi að allir dagar væru "tónleikarmeðLouReed"dagar

haha.. titillinn með smá vilborgarívafi! :D Það er bara betra! En VÁ .. ég gæti verið á Lou Reed tónleikum allan sólarhringinn alla daga ársins! Hann er svo mikill snillingur hann Lou Reed. Ég var einhvern veginn alls ekki búin að uppgötva hann fyrr en ég vissi að ég væri að fara á tónleikana. Ég stend í ævarandi þakkarskuld við Önnu systur mína .. og alla þá sem flugu með Flugfélagi Íslands í dag og í gær. (löng leiðinleg saga þar sem allir deyja í endann). Ægilegur á ferð hér. Sjitt hvað það eru svona u.þ.b. tvær manneskjur sem skilja hvað ég er að tala um. Ég held að þetta sé komið útí rugl. En síjú beibís á morgun á menningarnótt .. vonandi sem flesta allavega! :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.08.2004 12:54:07 / Halla

LouReedLouReedLouReed! Í kvöld!

Ég er að fara á Lou Reed í kvöld!! Jesss.. ég hlakka miiikið mikið til! :D Annars fór ég í MH í gær og það var hrææðilegt fyrst! Ég kom soldið seint svo ég fór upp í sal þar sem allir voru og leit yfir og ég þekkti ekki né kannaðist við EINN! Ég var eins og lúði! En svo hitti ég Melkorku.. og ... uuu .. :S vinkonu hennar sem ég man ekki hvað heitir! :S æjæj! En allavega sat ég hjá þeim þegar Lárus Rektor talaði og þannig og svo fór ég í bekkinn minn þar sem ég kannaðist ekki við neinn og kennarinn er alveg stórkostlegur! :D Snillingur þar á ferð. En já.. svo hitti ég Þórdísi og sá Sigrúnu Hönnu þannig að ég var ekki alveg ein! Hehehe ..

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.08.2004 15:53:00 / Halla

Hæ hó allir hér, Halla er komin!

Jább.. ég er komin heim til mín á nesið góða! Sem er alveg saga því ég komst ekki í gærköldi og næstum því ekki í morgun og ég átti að vera á skólasetningu kl. 11 en svo komst ég.. reyndar soldið seint .. en það var í lagi! En FOKK! Ég kom inní MH og bara leit yfir salinn og þekkti beinlínis ENGAN! Ekki einn einasta! En svo reddaðist það smám saman! .. Alveg stórfenglegt að vera loksins byrjuð í Menntaskólanum við Hamrahlíð eftir svona u.þ.b. 4ra ára bið eða svo! :D HAHA! En núna er ég hjá Vilborgunni minni .. hún er að taka til svo að hún rak mig í tölvuna í tíu mínútúr. Svo ætlum við í bæinn að kaupa litlar myndir í litlu myndavélarnar okkar! :D Sem er æðislegt! Úff.. eins og það er gaman að koma heim þá sakna ég Egilsstaða eiginlega .. ótrúlegt en satt. :$8|:!::cry::(:D:S:P:$:evil::^):(:):S:$:(:D8):lol::$

» 73 hafa sagt sína skoðun

09.08.2004 23:06:38 / Halla

Viiiinna! jább

Að ósk Jóhönnu þá þarf ég að segja ykkur öllum 5 sem lesið þetta að samstarfsfólk mitt á Hótel Héraði er með eindæmum yndislegt og skemmtilegt! Bara að koma því á framfæri! :) Ég kem eftir níuuu daga og ég hlakka til!... víjj.. en jámm...bleble! Gamangaman!

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.07.2004 16:24:02 / Halla

Katrín Lilja Ólafsdóttir! Ninja!

Katrín mín á ammæli og þess vegna á þetta blogg að vera tileinkað henni!! Katrín er mín beeeesta vinkona og ég elska hana rosarosarosarosarosarosa miiiiikið!!! Þið trúið því bara ekki! En jámm... TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ ELSKU KRÚTTIÐ MITT OG ÉG EEELSKA ÞIG! :*:*:*:*

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.07.2004 13:38:52 / Halla

Mehehew

Ég get ekki copy-að mynd hérna inná! :(

I don’t feel alright in spite of these comforting sounds you make. I don’t feel alright because you make promises that you break. Into your house, why don’t we share our solitude? Nothing is pure anymore but solitude. It’s hard to make sense, feels as if I’m sensing you through a lens. If someone else comes, I’ll just sit here listening to the drums. Previously I never called it solitude. And probably you know all the dirty shows I’ve put on. Blunted and exhausted like anyone. Honestly I tried to avoid it. Honestly. Back when we were kids, we would always know when to stop. And now all the good kids are messing up. Nobody has gained or accomplished anything. Svona líður mér, samt ekki útaf myndamálinu.. bara.. leið! Ég elska samt Mew.


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.07.2004 20:25:26 / Halla

Er að koma heima!

Ég kem heim á þriðjudaginn allir að hringja í mig! jammjammjamm! :) Annars allt gott að frétta.. ekki neitt samt.. en allt gott! jább

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.07.2004 15:42:26 / Halla

THE MARS VOLTA!

The Mars Volta er ný ,,einafuppáhaldshljómsveitunummínum" Af hverju hef ég ekki uppgötvað þessa hljómsveit fyrr?? Óskiljanlegt! En Placebo! VÁ! þeir voru svo miklu betri en ég bjóst við. Og Maus betri en ég hef nokkurn tímann séð þá. Ég segi ekki meir. Ég lenti í ótrúlega skemmtilegu atviki áðan, ég var í bænum að kaupa afmælisgjöf handa Katrínu minni og þá var ... æj ég sé fram á leiðinlega sögu svo ég læt staðar numið hér! :D En gott mál framundan, afmælisgleði hjá Katrínu, en á morgun tekur sorgin við því að þá fer ég aftur til Helvítis (Egilsstaða).. mér finnst reyndar fínt þar, en þegar ég er búin að vera hér ... þá finnst mér ekki fínt!

» 3 hafa sagt sína skoðun

07.07.2004 11:44:54 / Halla

HEIMA!!!

Jájájá! Ég er í heimsókn í eeelsku Reykjavík minni og það er yndislegt verð ég að segja, yndislegt sagði ég. Og svo í kvöld Placebo OG Maus, ég held bara að þetta verði bestu tónleikar sem ég hef farið á, enda Placebo ein af mínum uppáhaldshljómsveium og Maus beinlínis mín uppáhaldshljómsveit, svo að.. það bara gerist ekki betra! :D

Argh, ég hlakka svo til!

Ég hitti loksins meirihlutann af stelpunum mínum í gær, ég á eftir að hitta nýorðnu 16 ára stúlkuna mína! :( Hitti hana vonandi í dag! Ég er voðalega andlaus núna, veit ekkert hvað ég á að segja! ... Bara ... j'aime la vie et c'est beau. JEE! Réttupp hönd sem skildi þetta?

Sko, Hermione veit ALLT!


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.06.2004 23:54:19 / Halla

Halla is BACK!

Nei.. ég var bara að ljúga! ég er ekki komin til baka ... því miður! En ég mun heimsækja mitt ástkæra nes eftir akkúrat viku og fara á PLACEBO .. sem verður meergjað! Hei, það var geðveikt atriði sem gerðist fyrir mig í vinnunni áðan. Hann Páll Ivan sem ég vinn með sagði við mig: Þú ert mesta stelpa sem ég hef hitt! JEE!!! Núna geta allir þeir hálfvitar sem hafa kallað mig trukk bara hoppað uppí rassgatið á sér! :D;) neeei.. segi svona! Eeeen .. ég vildi að ég hefði tekið þetta upp! Þetta var eitt stoltasta augnablik lífs míns.. hehehe! Ég hlakka svooo til að koma heim, þó það sé nánast bara eitt lítið augnablik! Svo eru Maus á Seyðisfirði 15. júlí sem ég ætla að sjálfsögðu að sækja heim. Ekkert rugl! Vonandi með Láru og Vilborgu mínum! :D Víhú! Ohh.. ég var búin að finna FULLT sem ég ætlaði að blogga um en svo bara... blehhh... man ég ekki neitt! :S C'est la vie! Ég reyndi að tala við frakka um daginn, það gekk vægast sagt ekki! :D.. hohoho. En endilega ekki hætta að kíkja hingað! Lesið bara bloggið aftur og aftur og kommentið meira ruglfólk!!!!!!!!! ;)

BLESS!


» 7 hafa sagt sína skoðun

15.06.2004 22:41:31 / Halla

Halló halló...

Núna er ég á Egilsstöðum! Það er ágætt get ég ykkur sagt!.. Mun betra en ég átti von á! :) Sem er þá? Jábbs! GOOOTT!!! Ég er að vinna með mjög hressu fólki ... reyndar ein kona sem er skrítnasta kona sem ég hef á ævinni séð og sögur herma að hún hafi geymt börnin sín í búri á sínum yngri árum!? Hún er ... spes! Það er eitt sem ég elska við þennan stað, eða tvennt. Góða veðrið sem gefur mér lit í kinnarnar og svo allt óendanlega fyndna fólkið sem býr hérna alveg frá sautján ára (bílprófsaldrinum) til að minnsta kosti þrítugs! Það er ótrúlega fyndið, þegar ég fer í sjoppuna, sem er tæpan km. frá staðnum sem ég gisti á, þá keyra iðullega sömu manneskjurnar framhjá mér svona fjórum sinnum að minnsta kosti! Og ég er búin að komast að því að þetta er svona hringur sem fólkið keyrir allt kvöldið, svo á öðrum enda hringsins hittist fólkið og talar á milli bílrúðanna um daginn og veginn tekur svo rúntinn uppí sundlaug og snýr þar við og kemur aftur á "Essó-planið" þar sem hittingin er. Þetta þykir mér mjög fyndið og ég hlæ iðulega að þessu þegar ég geng ein um götur Egilsstaða. Ég verð nú samt að viðurkenna að ég sakna Reykjavíkur og sveitarinnar minnar (Seltjarnarness) alveg rooosalega mikið, en 22 dagar þangað til ég heimsæki staðinn! :D Gott mál það, gott mál. En heyrumst og sjáumst bara hress og kát að venju mitt kæra fólk! ;)

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4